Nokia E72 - Vinnuumhverfi

background image

Vinnuumhverfi

Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk

útvarpsbylgna (RF) við notkun í hefðbundinni stöðu við

eyrað eða þegar það er haft að minnsta kosti 2,2

sentimetra (7/8 úr tommu) frá líkamanum. Ef taska,

beltisklemma eða hald er notað þegar tækið er borið á

líkamanum við notkun ætti slíkur búnaður ekki að

innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í

þeirri fjarlægð frá líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf góða

tengingu við símkerfið. Sending gagnaskráa eða skilaboða

getur tafist þar til slík tenging er tiltæk. Fylgið

ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum þar til sendingu er

lokið.
Hlutar tækisins eru segulmagnaðir. Málmefni gætu dregist

að tækinu. Ekki má geyma kreditkort eða aðra

segulmagnaða hluti með geymsluminni nálægt tækinu

því upplýsingar sem þar eru geymdar gætu þurrkast út.