Nokia E72 - Upplýsingar um vottun (SAR)

background image

Upplýsingar um vottun (SAR)

Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um

áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er

hannað með tilliti til leyfilegra marka um áhrif af

útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla

með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu

vísindastofnuninni ICNIRP og innihalda öryggismörk sem

ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja

er notuð mælieiningin SAR (Specific Absorption Rate). Efri

mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru 2,0

vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af

líkamsvef. Mælingar á SAR eru gerðar í hefðbundnum

notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða styrk

á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur

tækis í notkun getur verið lægri en hámarksgildið, þar sem

tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk sem þarf til

að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á

styrkinn, t.d. hversu langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi

fyrir notkun tækisins við eyra 1,31 W/kg .
Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að

SAR-gildið sé annað. SAR-gildi kunna að vera breytileg milli

landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og

134

Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í

upplýsingum um vörur á www.nokia.com.

135

Vöru- og öryggisupplýsingar