Nokia E72 - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar

Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus

staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef

tækið styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði

kveikja á farsímanum og á netsímtölum. Tækið getur reynt

að koma á neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um

þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að

tryggja tengingu við allar aðstæður. Því skyldi aldrei

treysta eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða

bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1. Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal

hvort nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir

einnig þurft að ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:
• Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.
• Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í

tækinu þínu.

• Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða

flugsniði í virkt snið.

2. Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa

skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3. Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi

svæði. Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4. Styddu á hringitakkann.
Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar

upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa

tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má

slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.