Nokia E72 - Ökutæki

background image

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í

vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki

nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf,

rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða

hraðastýringu og loftpúðakerfi. Frekari upplýsingar er að

finna hjá framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja

tækið upp í ökutæki. Röng uppsetning eða viðgerð kann

að valda hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga skal reglulega

úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu

sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja

eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama

rými og tækið, hluta úr því eða aukabúnað með því. Hafa

skal í huga að loftpúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma

tækinu eða fylgihlutum fyrir á loftpúðasvæðinu.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél.

Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur skapað

hættu við stjórn flugvélarinnar og kann að vera ólögleg.