Nokia E72 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og

hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki

er ætlað til notkunar með BP-4L rafhlöðu. Hugsanlega

verða hægt að fá aðrar gerðir rafhlaðna frá Nokia fyrir

þetta tæki. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið

með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-8, AC-10. Númer

hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem

er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd með einu af

eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C, K eða UB.
Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð

sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal-

og biðtími er orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta

um rafhlöðu. Aðeins skal nota rafhlöður sem samþykktar

eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með

hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar

með þessu tæki.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan

hefur ekki verið notuð í langan tíma, kann að vera

nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan

og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er

alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn

birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja

hleðslutækið áður en rafhlaðan er fjarlægð.
Rétt hleðsla. Taka skal hleðslutækið úr sambandi við

rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er ekki í notkun.

Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við

hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar.

Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt og smátt ef hún

er ekki í notkun.

130

Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Forðist mikið frost eða mikinn hita. Æskilegast er að

rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá

59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og

líftíma rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann

að hætta að starfa tímabundið. Einkum hefur mikið frost

takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Ekki tengja framhjá. Skammhlaup getur orðið fyrir slysni

þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni

veldur beinni tengingu milli + og - skautanna á

rafhlöðunni. (Þau líta út eins og málmrendur á

rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar

vararafhlaða er höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli

skautanna getur valdið skemmdum á rafhlöðunni eða

hlutnum sem veldur tengingunni.
Losun. Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta

sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin

lög og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar

mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.
Leki. Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja,

gata eða tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka skaltu

forðast að hún komist í snertingu húð eða augu. Gerist það

skal hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna

með vatni eða leita læknisaðstoðar.
Skemmdir. Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja

hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa

rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.

Rafhlöður geta sprungið ef þær skemmast.
Rétt notkun. Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún

er ætluð. Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér

eld- eða sprengihættu, eða aðra hættu. Ef þú missir tækið

eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og telur

að rafhlaðan hafi skemmst, skaltu fara með hana til

þjónustuvers til skoðunar áður en þú heldur áfram að nota

hana. Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki eða rafhlöðu.

Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.