Meðferð tækisins
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara
þarf gætilega með. Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við
að halda tækinu í ábyrgð.
• Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns
vökvar geta innihaldið steinefni sem tæra rafrásirnar.
Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og leyfa því
að þorna alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.
• Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum
né geyma það þar. Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar
þess geta skemmst.
• Ekki skal geyma tækið á köldum eða heitum stað. Hátt
hitastig getur dregið úr endingu rafeindatækja,
skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu hitastigi getur raki
myndast innan í því og hann getur skemmt
rafrásaspjöld.
• Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er
í þessari handbók.
• Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista
það. Óvarleg meðferð getur skemmt innri rafrásaspjöld
og fíngerðan búnað.
• Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða
sterk hreinsiefni til þess að þrífa tækið. Aðeins skal nota
mjúkan, hreinan og þurran klút til að hreinsa yfirborð
tækisins.
131
Vöru- og öryggisupplýsingar
• Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega
hluti tækisins og komið í veg fyrir að þeir vinni rétt.
• Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða
samþykkt varaloftnet. Ósamþykkt loftnet, breytingar á
þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og kunna að
brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
• Nota skal hleðslutæki innandyra.
• Taktu öryggisafrit af gögnum sem þú vilt geyma, t.d.
tengiliðum og dagbókaratriðum.
• Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig
hámarksafköst með því að slökkva á tækinu og
fjarlægja rafhlöðu þess.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna,
hleðslutækið eða annan aukabúnað.