Nokia E72 - Um heimakerfi

background image

Um heimakerfi

Tækið styður UPnP (Universal Plug and Play) og er vottað

af DLNA (Digital Living Network Alliance).. Hægt er að nota

aðgangsstaðartæki eða beini fyrir þráðlaust staðarnet til

að búa til heimanet. Þá er hægt að að tengja samhæf

UPnP-tæki sem styðja þráðlaus staðarnet við netið.

Samhæf tæki geta verið farsími, samhæf tölva, hljóðkerfi,

sjónvarp eða samhæfur þráðlaus móttakari sem er tengur

við hljóðkerfi eða sjónvarp.
Hægt er að samnýta og samstilla skrár sem eru vistaðar í

farsímanum við önnur samhæf UPnP-tæki og tæki með

DLNS-vottun á heimaneti. Til að fá virkja heimanetið og

stýra stillingum þess velurðu

Valmynd

>

Forrit

>

Heimakerfi

Einnig er hægt að nota Heimanet-forritið til

að skoða og spila skrár úr heimanetstækjum í tækinu þínu

eða í öðru samhæfu tæki, svo sem tölvu, hljóðkerfi eða

sjónvarpi.
Til að skoða skrár í öðru heimanetstæki ferðu í til dæmis í

Myndir, velur skrá,

Valkostir

>

Sýna á heimaneti

og

tækið.
Til að hægt sé að nota þráðlausu staðarnetstengingu í

tækinu á heimaneti þarf hún að vera virk og önnur UPnP-

heimatæki þurfa að vera tengd við sama heimanetið.
Þegar búið er að setja upp heimanet er hægt að samnýta

myndir og myndskeið með vinum og fjölskyldu heima.

Einnig er hægt að geyma skrár hjá efnismiðlara eða sækja

skrár úr samhæfum heimamiðlara. Hægt er að spila tónlist

57

Te

nginga

r

background image

sem er vistuð í tækinu í hljómflutningstækjum sem eru

með DLNA-vottun og stýra spilunarlistum og hljóðstyrk

beint úr tækinu. Einnig er hægt að skoða myndir sem

teknar hafa verið með myndavélinni í tækinu á samhæfum

sjónvarpsskjá, og stýrt öllu með tækinu um þráðlaust

heimanet.
Heimanetið notar öryggisstillingar þráðlausu

staðarnetstengingarinnar. Nota skal heimanetið á

þráðlausu staðarneti með tæki sem er með aðgangsstað

fyrir þráðlaust net og dulkóðun.
Tækið er aðeins tengt heimanetinu ef þú samþykkir beiðni

um tengingu frá öðru samhæfu tæki eða velur þann kost

að skoða, spila eða afrita skrár í tækinu eða leita að öðrum

tækjum.