Nokia E72 - Ytri SIM-stilling

background image

Ytri SIM-stilling

Áður en hægt er að velja þetta verða tækin að vera pöruð

saman og kveikja þarf á pöruninni í hinu tækinu. Við pörun

skal nota 16 stafa aðgangskóða og stilla hitt tækið á

leyfilegt.
Til að nota ytri SIM-stillingu með samhæfum bílbúnaði

skaltu kveikja á Bluetooth og svo á ytri SIM-stillingu í

tækinu. Kveiktu á ytri SIM-stillingu í hinu tækinu.
Þegar kveikt er á ytri SIM-stillingu í tækinu birtist

Ytra SIM

í biðstöðu. Slökkt er á tengingunni við þráðlausa

símkerfið, og það er gefið til kynna með í

sendistyrksvísinum. Þá er ekki hægt að nota þjónustu SIM-

kortsins eða valkosti þar sem tenging við símkerfið er

nauðsynleg.
Þegar ytri SIM-stilling hefur verið valin í þráðlausa tækinu

er aðeins hægt að hringja og svara símtölum með

samhæfum aukahlut sem er tengdur við það (t.d.

bílbúnaði). Ekki er hægt að hringja úr þráðlausa tækinu

þegar stillingin er virk, nema í neyðarnúmerið sem er

forritað í tækið. Til að hringja úr tækinu þarf fyrst að

slökkva á ytri SIM-stillingu. Ef tækinu hefur verið læst skal

fyrst slá inn lykilnúmerið til að opna það.
Slökkt er á ytri SIM-stillingunni með því að ýta á rofann og

velja

Loka ytri SIM

.