Nokia E72 - Um Bluetooth-tengingar

background image

Um Bluetooth-tengingar

Með Bluetooth-tækni er hægt að koma á þráðlausri

tengingu við önnur samhæf tæki, svo sem farsíma, tölvur,

höfuðtól og bílbúnað.
Hægt er að nota tenginguna til að senda myndir,

myndskeið, tónlist, hljóðskrár og minnismiða, flytja skrár

úr samhæfri tölvu og til að prenta myndir með samhæfum

prentara.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til

samskipta þurfa tækin ekki að vera í beinni sjónlínu hvert

við annað. Hin vegar þurfa þau að vera í innan við 10 metra

(33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið á

tengingunni vegna hindrana eins og veggja eða annarra

raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 +

EDR sem styður eftirfarandi snið: Advanced Audio

Distribution, Audio Video Remote Control, Basic Imaging,

Basic Printing, Dial-up Networking, File Transfer, Generic

Access, Hands-free, Headset, Human Interface Device,

Local Positioning, Object Push, Phone Book Access, SIM

Access, Serial Port, Video Distribution. Til að tryggja

samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni

skal nota aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir

þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum

annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.

Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu

símans og draga úr endingu hennar.
Þegar tækið er læst er aðeins hægt að tengja það við leyfð

tæki.