Pörun tækja
Til að parast við samhæf tæki og sjá hvaða tæki eru pöruð
opnarðu aðalskjá Bluetooth og flettir til hægri.
Fyrir pörun skaltu búa til þitt eigið lykilorð (1 til 16
tölustafir) og biðja eiganda hins tækisins um að nota sama
lykilorð. Tæki sem ekki eru með notandaviðmót eru með
fast lykilorð. Lykilorðið er aðeins notað einu sinni.
1. Parast er við tæki með því að velja
Valkostir
>
Nýtt
parað tæki
. Tæki sem eru innan svæðisins birtast.
2. Veldu tæki og sláðu inn lykilorðið. Slá verður sama
lykilorð inn í hitt tækið.
3. Sumir hljóðaukahlutir tengjast tækinu sjálfvirkt eftir
pörun. Flettu að öðrum kosti að aukahlutnum og veldu
Valkostir
>
Tengjast við hljóðtæki
.
Pöruð tæki eru auðkennd með í tækjaleitinni.
Til að tilgreina tæki sem heimilt eða óheimilt skaltu fletta
að því og velja svo úr eftirfarandi valkostum:
•
Stilla sem heimilað
— Hægt er að koma á tengingu
milli tækisins þíns og hins tækisins án vitneskju þinnar.
Ekki þarf að samþykkja eða heimila tenginguna
sérstaklega. Notaðu þessa stillingu fyrir þín eigin tæki,
s.s. samhæft höfuðtól eða tölvu, eða tæki þeirra sem þú
treystir. táknar samþykkt tæki á skjá paraðra tækja.
•
Stilla sem óheimilað
— Samþykkja þarf beiðnir um
tengingu frá þessu tæki sérstaklega hverju sinni.
Hætt er við pörun með því að velja tækið og síðan
Valkostir
>
Eyða
.
Hætt er við allar paranir með því að velja
Valkostir
>
Eyða öllum
.
55
Te
nginga
r