Nokia E72 - Um þráðlaus staðarnet

background image

Um þráðlaus staðarnet

Tækið getur fundið og tengst þráðlausum staðarnetum. Á

þráðlausu staðarneti er hægt að tengjast við internetið og

önnur samhæf tæki sem styðja þráðlaust staðarnet.
Til að geta notað þráðlaust staðarnet þarf eftirfarandi:
• Þráðlaust staðarnet verður að vera tiltækt á staðnum.
• Tækið verður að vera tengt þráðlausa staðarnetinu.

Sum þráðlaus staðarnet eru varin og það þarf að fá

aðgangsorð hjá þjónustuveitunni til að geta tengst

þeim.

• Internetaðgangsstaður þarf að vera gerður fyrir

þráðlaust staðarnet. Notaðu aðgangsstaðinn fyrir

aðgerðir sem krefjast tengingar við internetið.

Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú býrð

til gagnatengingu með því að nota netaðgangsstað.

Þráðlausa staðarnetstengin er rofin þegar þú lokar

gagnatengingunni.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali

stendur eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt

að tengjast við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet

í einu, en nokkur forrit geta hins vegar notað sama

internetaðgangsstaðinn.
Aðgerðir sem nota þráðlaust staðarnet eða leyfa slíkum

aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru

notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka

endingartíma rafhlöðunnar.
Tækið þitt styður eftirtaldar í þráðlausu staðarneti:
• IEEE 802.11b/g staðalinn
• 2,4 GHz virkni

• WEP, WPA/WPA2 og 802.1x sannvottunaraðferðir.

Aðeins er hægt að nota þessa valkosti ef símkerfið

styður þá.

Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum

dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar

staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr

hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum

án heimildar.
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt fyrir

að tækið sé í ótengdu sniði, ef það er í boði. Mundu að fara

að öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og