Aðgangsstaðahópar búnir til
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Nettengileiðir
.
Í sumum forritum er hægt að nota aðgangsstaðahópa til
að nettengjast.
Til að þurfa ekki að velja hvaða aðgangsstað á að nota í
hvert sinn sem tækið reynir að nettengjast er hægt að búa
til hóp sem inniheldur ýmsa aðgangsstaði og tilgreina í
hvaða röð á að nota aðgangsstaðina til að nettengjast.
Til dæmis er hægt að bæta aðgangsstöðum fyrir þráðlaust
staðarnet og pakkagögn við aðgangsstaðahópinn og nota
hópinn til að vafra á netinu. Ef aðgangsstaður fyrir
þráðlaust staðarnet er látinn hafa forgang tengist tækið
netinu um þráðlaust staðarnet, ef það er tiltækt, en um
pakkagagnatengingu að öðrum kosti.
Nýr aðgangsstaðahópur er búinn til með því að velja
Valkostir
>
Sýsla
>
Nýtt takmark
.
Til að bæta aðgangsstað við aðgangsstaðahóp velurðu
hópinn og
Valkostir
>
Nýr aðgangsstaður
. Til að afrita
aðgangsstað úr öðrum hópi velurðu hópinn, flettir að
aðgangsstaðnum og velur
Valkostir
>
Skipuleggja
>
Afrita á annan stað
.
Til að breyta forgangsröð aðgangsstaða innan hóps
velurðu aðgangsstað og síðan
Valkostir
>
Skipuleggja
>
Breyta forgangi
.