Nokia E72 - Um GPS

background image

Um GPS

GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af

Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni þess og

viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða

fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem

gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann að breytast í

samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna

um borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa

leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig haft

áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar

hindranir auk veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku

og gæði GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki náist ekki

inni í byggingum eða neðanjarðargöngum og þau geta

orðið fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar

staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta eingöngu

á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi

fyrir staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og

sléttunarvillur eru mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á

móttöku og gæðum GPS-merkja.
Hnitin í GPS-tækinu eru gefin upp samkvæmt alþjóðlega

WGS-84 hnitakerfinu. Það er mismunandi eftir svæðum

hvort hnit séu í boði.