Nokia E72 - Leiðsögn

background image

Leiðsögn

Veldu

Valmynd

>

Forrit

>

GPS-gögn

og

Leiðsögn

.

Kveiktu á leiðarlýsingunni utandyra. Ef kveikt er á henni

innandyra er ekki víst að GPS-móttakarinn fái

nauðsynlegar upplýsingar frá gervihnöttunum.
Við leiðarlýsingu er notaður snúningsáttaviti á skjá

tækisins. Rauð kúla sýnir í hvaða átt áfangastaðurinn er

og áætluð vegalengd til áfangastaðar er sýnd inni í

áttavitahringnum.
Leiðsögnin sýnir beinustu leiðina og stystu vegalengdina

til áfangastaðar, mælt í beinni línu. Ekki er tekið tillit til

hindrana á leiðinni, svo sem bygginga og náttúrulegra

farartálma. Og ekki er tekið tillit til hæðarmismunar þegar

fjarlægðin er reiknuð út. Leiðsögnin er aðeins virk þegar

þú ert á hreyfingu.
Til að stilla á áfangastað skaltu velja

Valkostir

>

Velja

ákvörðunarstað

og leiðarmerki sem áfangastað eða slá

inn lengdar- og breiddargráður.
Til að hreinsa áfangastaðinn sem valinn var fyrir ferðina

velurðu

Hætta leiðsögu

.