Nokia E72 - Góð ráð við að koma á GPS-tengingu

background image

Góð ráð við að koma á

GPS-tengingu

Ef tækið finnur ekki gervihnattamerki gættu þá að

eftirfarandi atriðum:
• Sértu innanhúss skaltu fara út til að ná betra merki.
• Sértu úti skaltu fara á opnara svæði.
• Gakktu úr skugga um að höndin sé ekki yfir GPS-loftneti

tækisins.

• Slæm veðurskilyrði geta haft áhrif á sendistyrkinn.
• Sum farartæki eru með skyggðum rúðum og ekki er víst

að gervihnattamerki berist í gegnum þær.

Athugaðu stöðu gervihnattamerkja — Til að athuga

hvað tækið þitt fann mörg gervitungl og hvort það tekur

á móti gervihnattamerkjum skaltu velja

Valmynd

>

Forrit

>

GPS-gögn

og

Valkostir

>

Staða gervitungla

.

Ef tækið hefur fundið gervitungl

birtist stika fyrir hvert þeirra á

upplýsingaskjánum fyrir

gervitungl. Því lengri sem stikan

er, því sterkara er merkið frá

gervitunglinu. Stikan skiptir

litum þegar tækið hefur fengið

nægar upplýsingar úr merkinu

frá gervitunglinu til að geta reiknað út staðsetningu þína.
Tækið verður að fá merki frá a.m.k. fjórum gervitunglum

til að hægt sé að reikna út staðsetningu þess. Þegar

frumútreikningur hefur farið fram kann það að vera

mögulegt að reikna út staðsetningu þína með þremur

gervitunglum. Hins vegar er útreikningurinn nákvæmari

þegar fleiri gervitungl finnast.