Kynning búin til
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Ekki er hægt að búa til margmiðlunarkynningar ef
MMS-
gerð
er stillt á
Takmörkuð
. Stillingunni er breytt með því
að velja
Valkostir
>
Stillingar
>
Margmiðlunarboð
>
MMS-gerð
>
Allt
eða
Með viðvörunum
.
1. Til þess að búa til kynningu velurðu
Ný skilaboð
>
Skilaboð
. Skilaboðin breytast í
margmiðlunarskilaboð, samkvæmt því efni sem er sett
inn.
2. Í reitnum Til færirðu inn símanúmer eða netfang
viðtakanda eða ýtir á skruntakkann til að setja inn
viðtakanda úr tengiliðalistanum. Ef þú slærð inn fleiri
en eitt númer eða netfang skaltu aðskilja þau með
semíkommu.
3. Veldu
Valkostir
>
Setja inn efni
>
Setja inn
kynningu
og svo sniðmát fyrir kynningu. Sniðmát
getur skilgreint hvaða hljóð- og myndskrár eru settar
inn í kynninguna, hvar þær eru staðsettar, sem og
umbreytingu á milli mynda og skyggna.
4. Veldu textasvæðið og sláðu inn textann.
5. Til að setja myndir, hljóðskrár, myndskeið eða
minnismiða inn í kynninguna skaltu fletta að svæðinu
og velja
Valkostir
>
Setja inn
.
6. Til að setja inn skyggnur skaltu velja
Valkostir
>
Setja
inn
>
Nýja skyggnu
.
Veldu
Valkostir
>
Bakgrunnsstillingar
til að velja
bakgrunnslit kynningarinnar og bakgrunnsmyndir fyrir
mismunandi skyggnur.
Til að stilla hvernig skipt er á milli mynda eða skyggna
velurðu
Valkostir
>
Stillingar áhrifa
.
Kynningin er forskoðuð með því að velja
Valkostir
>
Forskoða
. Aðeins er hægt að skoða
margmiðlunarkynningar í samhæfum tækjum. Þær kunna
að líta aðeins öðruvísi út í öðrum tækjum.