
margmiðlunarskilaboð
Veldu
Valmynd
>
Skilaboð
.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og
birt margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið
breytilegt eftir móttökutækinu.
Margmiðlunarskilaboð (MMS) geta innihaldið texta,
myndir, hljóð og myndskeið. Áður en þú getur sent eða
tekið á móti margmiðlunarskilaboðum með tækinu þínu
þarftu að færa inn réttar stillingar fyrir
margmiðlunarskilaboð. Tækið gæti borið kennsl á
söluaðila SIM-kortsins og fært sjálfkrafa inn réttar
stillingar fyrir margmiðlunarskilaboð. Ef svo er ekki skaltu
hafa samband við þjónustuveituna þína til að fá réttar
stillingar, panta stillingarnar hjá þjónustuveitunni í
stillingaboðum, eða nota stillingaforritið.