Uppsetning á tölvupósti
Með tölvupóstuppsetningunni geturðu sett upp
fyrirtækispósthólf, t.d. Mail for Exchange og netpósthólf.
Þegar fyrirtækjapósturinn þinn er settur upp gætir þú
verið beðin(n) um heiti miðlarans sem tengist
tölvupóstfanginu þínu. Hafðu samband við tölvudeild
fyrirtækisins þíns til að fá frekari upplýsingar.
1. Til að opna uppsetninguna velurðu
Setja upp
tölvupóst
á heimaskjánum.
2. Færðu inn tölvupóstfangið þitt og lykilorð. Ef ekki er
hægt að stilla tölvupóstinn sjálfkrafa í uppsetningunni
þarftu að velja gerð pósthólfsins og færa inn
pósthólfsstillingar.
Ef tækið inniheldur fleiri tölvupóstbiðlara geturðu valið þá
þegar þú ræsir póstuppsetninguna.