Skilaboðalestur
Með skilaboðalesaranum geturðu hlustað á texta-,
margmiðlunar- og hljóðskilaboð, sem og tölvupóst.
Hægt er að hlusta á ný skilaboð eða tölvupóst á
heimaskjánum með því að halda vinstri valtakkanum inni
þar til skilaboðalesturinn hefst.
Til að hlusta á skilaboð úr innhólfi skaltu fletta að þeim og
velja
Valkostir
>
Hlusta
. Til að hlusta á tölvupóst í
pósthólfi skaltu fletta að honum og velja
Valkostir
>
Hlusta
. Ýttu á hætta-takkann til að stöðva lesturinn.
Ýttu á skruntakkann til að gera hlé á lestrinum eða halda
áfram. Flettu til hægri til að hlaupa yfir skilaboð. Flettu til
vinstri til að endurtaka spilun á skilaboðum eða tölvupósti.
Til að fara til baka í fyrri skilaboðin skaltu fletta til vinstri
þar sem skilaboðin hefjast.
Til að sjá skilaboð eða tölvupóst sem texta án hljóðs skaltu
velja
Valkostir
>
Opna
.