Nokia E72 - Lag spilað

background image

Lag spilað

Veldu

Valmynd

>

Miðlar

>

Tónlistarsp.

.

Til að bæta öllum tiltækum lögum við tónlistarsafn

velurðu

Valkostir

>

Uppfæra safn

.

Til að spila lag velurðu viðkomandi flokk og svo lagið.
Hlé er gert á spilun með því að ýta á skruntakkann og henni

er haldið áfram með því að ýta á takkann aftur. Spilun er

stöðvuð með því að fletta niður.
Skruntakkanum er ýtt til vinstri eða hægri og haldið inni

til að spóla áfram eða til baka.
Farið er áfram í næsta hlut með því að fletta til hægri. Farið

er í upphaf hlutarins með því að fletta til vinstri. Til að

hoppa yfir í fyrri hlutinn flettirðu aftur til vinstri innan 2

sekúndna eftir að lag hefst.
Hljóminum er breytt með því að velja

Valkostir

>

Tónjafnari

.

Til að breyta hljómburðinum og steríóstillingunni eða

auka bassann velurðu

Valkostir

>

Stillingar

.

Til að fara aftur á heimaskjáinn og láta spilarann vera í

gangi í bakgrunninum skaltu ýta stuttlega á hætta-

takkann.

Viðvörun: Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur

skaðað heyrn. Hlusta skal á tónlist á hóflegum hljóðstyrk

og ekki halda tækinu nærri eyranu þegar kveikt er á

hátölurunum.