Áskrift að þjónustu
Veldu
Valmynd
>
Miðlar
>
Samn. á neti
.
Hægt er að gerast áskrifandi að samnýtingarþjónustu á
netinu með því að fara á heimasíðu þjónustuveitunnar og
kanna hvort Nokia-tækið þitt samhæfist þjónustunni. Þar
eru leiðbeiningar um hvernig hægt er að gerast áskrifandi.
Þú færð notandanafn og lykilorð til að geta sett áskriftina
upp í tækinu.
1. Til að gera þjónustu virka opnarðu samnýtingarforritið
í tækinu, velur þjónustu og
Valkostir
>
Virkja
.
2. Gefðu tækinu tíma til að koma á nettengingu. Ef beðið
er um internetaðgangsstað velurðu hann af listanum.
3. Skráðu þig í áskriftina eins og kveðið er á um á
heimasíðu þjónustuveitunnar.
Þjónustuveitan eða viðkomandi þriðji aðili gefa
upplýsingar um hvort þjónusta þriðja aðila sé tiltæk og
hvað sú þjónusta og gagnaflutningur kosta.