Myndskeiðum breytt
Myndvinnslan styður hreyfimyndsniðin .3gp og .mp4, og
hljóðskrársniðin .aac, .amr, .mp3 og .wav. Hún styður þó
ekki öll skráarsnið eða öll afbrigði skráarsniða.
Til að breyta myndskeiðum í Myndum flettirðu að
myndskeiði og velur
Valkostir
>
Breyta
, og úr
eftirfarandi:
•
Sameina
— til að setja inn mynd eða myndskeið í
upphaf eða lok valda myndskeiðisins
•
Breyta hljóði
— til að setja inn nýtt hljóðinnskot í
staðinn fyrir upprunalega hljóðið í myndskeiðinu
•
Setja inn texta
— til að setja inn texta í upphaf eða í
lok myndskeiðisins
•
Klippa
— til að klippa myndina og merkja þá hluta sem
eiga að vera áfram í myndskeiðinu
Til að taka einn ramma út úr myndinni skaltu opna
klippiskjáinn og velja
Valkostir
>
Taka skjámynd
. Á
forskoðunarskjánum fyrir smámyndir skaltu ýta á
skruntakkann og velja
Taka skjámynd
.