Nokia E72 - Um staðsetningaraðferðir

background image

Um staðsetningaraðferðir

Maps sýnir hvar þú ert staddur á kortinu með GPS, A-GPS,

þráðlausu staðarneti eða staðsetningu byggðri á

auðkenni endurvarpa.
GPS (Global Positioning System) er leiðsögukerfi sem

byggir á móttöku staðsetningarupplýsinga frá

gervitunglum til að reikna út staðsetningu þína. A-GPS

(Assisted GPS) er sérþjónusta sem sendir þér GPS-gögn,

sem eykur hraða og nákvæmni staðsetningarinnar.
Staðsetning með þráðlausu staðarneti (WLAN) eykur

nákvæmni staðsetningar þegar GPS-merki nást ekki,

sérstaklega ef þú ert innandyra eða milli hárra bygginga.
Með staðsetningu byggðri á auðkennum endurvarpa er

staðan ákvörðuð gegnum loftnetsturninn sem tækið er

tengt við eins og er.
Nákvæmni staðsetningarinnar getur skeikað frá nokkrum

metrum til nokkurra kílómetra, eftir því hvaða

staðsetningaraðferð er tiltæk.
Þegar þú notar Korta-forritið í fyrsta skipti er beðið um að

þú tilgreinir internetaðgangsstaðinn til að hlaða niður

73

Kort

background image

kortaupplýsingum, nota A-GPS eða tengjast þráðlausu

staðarneti.
GPS-kerfið (Global Positioning System) er rekið af

Bandaríkjastjórn sem ber alla ábyrgð á nákvæmni þess og

viðhaldi. Nákvæmni staðsetningargagna kann að verða

fyrir áhrifum af breytingum á GPS-gervihnöttum sem

gerðar eru af Bandaríkjastjórn og kann að breytast í

samræmi við stefnu varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna

um borgaralegt GPS og alríkisáætlun um þráðlausa

leiðsögu. Slæm rúmfræði gervihnatta getur einnig haft

áhrif á nákvæmni. Staðsetning, byggingar, náttúrulegar

hindranir auk veðurskilyrða kunna að hafa áhrif á móttöku

og gæði GPS-merkja. Verið getur að GPS-merki náist ekki

inni í byggingum eða neðanjarðargöngum og þau geta

orðið fyrir áhrifum frá efnum eins og steypu og málmi.
Ekki ætti að nota GPS fyrir nákvæmar

staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta eingöngu

á staðsetningargögn frá GPS-móttakaranum og símkerfi

fyrir staðsetningu eða leiðsögn.
Áreiðanleiki áfangamælisins er ekki fullkominn og

sléttunarvillur eru mögulegar. Nákvæmnin veltur einnig á

móttöku og gæðum GPS-merkja.

Til athugunar: Notkun þráðlauss staðarnets kann að

vera takmörkuð í einhverjum löndum. Í Frakklandi er

aðeins heimilt að nota þráðlaust staðarnet innandyra.

Nánari upplýsingar fást hjá yfirvöldum á staðnum.