Skoðaðu staðsetninguna þína
á kortinu
Sjáðu núverandi staðsetningu þína á kortinu og flettu milli
borga og landa á kortum.
Veldu
Valmynd
>
Kort
og
Staðsetning
.
merkir núverandi staðsetningu þína ef hún er tiltæk. Ef
staðsetningin þín er ekki tiltæk sýnir síðustu þekktu
staðsetninguna þína.
Ef eingöngu staðsetning byggð á auðkenni endurvarpa er
tiltæk sýnir rauður baugur í kringum staðsetningartáknið
svæðið sem þú gætir verið á. Á þéttbýlum svæðum er
staðsetningarmatið nákvæmara og rauði baugurinn er
minni þar en á strjálbýlum svæðum.
Kortið skoðað — Notaðu skruntakkann. Kortið snýr
sjálfgefið í norður.
Núverandi eða síðasti þekkti staður skoðaður — Ýttu
á 0.
Stækka eða minnka. — Ýttu á * eða #.
Ef þú flettir upp á svæði sem kortin sem eru á tækinu þínu
ná ekki yfir og þú ert með virka gagnatengingu er nýjum
kortum hlaðið sjálfkrafa niður.
Umfang korta er mismunandi eftir löndum og svæðum.