Finna staði
Með Kortum getur þú fundið staði og þjónustu.
Veldu
Valmynd
>
Kort
og
Leita
.
1. Sláðu inn leitarorð á borð við götuheiti eða póstnúmer.
Veldu
Hreinsa
til að hreinsa leitarreitinn.
2. Veldu
Áfram
.
3. Á lista yfir mögulegar samsvaranir skaltu fara að því
atriði sem þú ert að leita að. Til að birta staðinn á
kortinu velurðu
Kort
.
Til að skoða á kortinu aðra staði af listanum yfir
leitarniðurstöður, skaltu fletta upp eða niður.
Fara aftur í niðurstöðulistann — Veldu
Listi
.
Leita að mismunandi stöðum í nágrenninu — Veldu
Leita í flokkum
og flokk, t.d. verslun, gisting eða
samgöngur.
Ef ekkert finnst skaltu athuga hvort leitarorðin eru rétt
stafsett. Ef vandræði eru með nettenginguna getur það
einnig haft áhrif á niðurstöður vefleitar.
Til að spara gagnaflutningsfjöld er einnig hægt aða fá
leitarniðurstöður án virkrar internettengingar, ef þú ert
með kort af leitarsvæðinu vistað á tækinu.
Skoða upplýsingar um
staðsetningu
Skoða frekari upplýsingar um tiltekna staðsetningu eða
stað, svo sem hótel eða veitingastað, ef þær eru í boði.
Veldu
Valmynd
>
Kort
og
Staðsetning
.