Nokia E72 - Öryggi tenginga

background image

Öryggi tenginga

Með öryggistengingu og öryggisskilríkjum geturðu vafrað

örugg(ur) um netið.
Ef öryggisvísirinn birtist á meðan tenging er virk er

gagnasendingin á milli tækisins og netgáttarinnar eða

miðlarans dulkóðuð.
Öryggistáknið sýnir ekki öryggi gagnasendingar milli

gáttarinnar og efnisþjónsins (þar sem gögnin eru geymd).

Þjónustuveitan tryggir gagnasendinguna milli gáttarinnar

og efnisþjónsins.
Öryggisvottorð geta verið nauðsynleg fyrir tiltekna

þjónustu, líkt og bankaþjónustu. Látið er vita ef uppruni

miðlarans er ekki staðfestur eða ef tækið inniheldur ekki

er rétt öryggisvottorð. Þjónustuveitan gefur nánari

upplýsingar.

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr

þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu

hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi

fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.

Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða

tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru

bundin tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða

„Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“ birtist þó svo að

vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og

tímasetning sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr

skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess og að

það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.