
Venjuleg símtöl
1. Sláðu inn svæðis- og símanúmerið á heimaskjáinn.
Tölu er eytt með því að ýta á bakktakkann.
Til að hringja til útlanda ýtirðu á + (+ kemur í stað
alþjóðlega svæðisnúmersins) og slærð inn
landsnúmerið og svæðisnúmerið (án 0, ef með þarf) og
síðan símanúmerið.
2. Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
3. Ýttu á hætta-takkann til að slíta símtali (eða hætta við
að hringja).
Það að ýta á hættatakkann lýkur alltaf símtali, jafnvel
þó svo að annað forrit sé opið.
Til að hringja úr Tengiliðum skaltu velja
Valmynd
>
Tengiliðir
. Flettu að nafninu eða sláðu fyrstu stafi þess inn
í leitarreitinn. Ýttu á hringitakkann til að hringja í
tengiliðinn. Ef þú hefur vistað nokkur númer fyrir tengilið
skaltu velja tiltekna númerið af listanum og ýta á
hringitakkann.