Nokia E72 - Stillingar

background image

Stillingar

Til að koma á samnýtingu hreyfimynda þarf P2P- og 3G-

tengistillingar.

Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga

Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir heitinu

SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-sniðstillingar

þurfa að hafa verið valdar í tækinu áður en þú getur notað

samnýtingu hreyfimynda. SIP-stillingarnar fást hjá

þjónustuveitunni. Nauðsynlegt er að vista þær í tækinu.

Þjónustuveitan gæti sent þér stillingarnar eða gefið þér

upp nauðsynlegar stillingar.
Til að setja SIP-vistfang á tengiliðaspjald:
1. Veldu >

Tengiliðir

.

2. Opnaðu tengiliðaspjaldið (eða búðu til nýtt spjald fyrir

viðkomandi).

3. Veldu

Valkostir

>

Bæta við upplýsingum

>

Samnýta hreyfimynd

.

4. Sláðu inn SIP-vistfangið á forminu

notandanafn@vistfang (hægt er að nota IP-tölu í stað

vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu notað

símanúmer hans, ásamt landsnúmerinu (t.d. +354), til

að samnýtia hreyfimyndir (ef þjónustuveitan styður

það).

3G-tengistillingar

Til að koma á 3G-tengingu:
• Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að fá

samning um notkun 3G-símkerfis.

• Gakktu úr skugga um að 3G-aðgangsstaðastillingarnar

í tækinu hafi verið rétt valdar.