Raddstýrð hringing
Tækið þitt styður raddskipanir. Raddskipanir velta ekki á
rödd notandans þannig að hann þarf ekki að taka upp
raddmerki áður en hann notar þær. Tækið býr til
raddmerki fyrir færslur í tengiliðum og ber það raddmerki
sem notandinn segir saman við þær. Raddkennslin í
tækinu laga sig að rödd aðalnotandans til að líklegra sé að
tækið beri kennsl á raddskipunina.
Raddmerki fyrir tengilið er nafnið sem er vistað hjá
tengiliðnum. Til að hlusta á tilbúna raddmerkið skaltu
velja tengilið og
Valkostir
>
Um raddmerki
Flettu að
tengilið og veldu
Valkostir
>
Spila raddmerki
.
Hringt með raddmerki
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í
hávaðasömu umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti ekki
að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í
notkun. Haltu tækinu nálægt þér þegar þú berð fram
raddmerkið.
1. Til að hefja raddstýrða hringingu skaltu halda hægri
valtakkanum inni á heimaskjánum. Ef samhæft
höfuðtól með höfuðtólstakka er notað skaltu halda
takkanum inni til að hefja raddstýrða hringingu.
32
Hr
ingt úr tækinu
2. Stutt hljóðmerki heyrist og textinn
Tala nú
birtist.
Berðu nafnið sem er vistað hjá tengiliðnum skýrt fram.
3. Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn og birtir
nafnið og símanúmerið. Ef þú vilt ekki hringja í
tengiliðinn skaltu velja annan tengilið af lista yfir
samsvaranir innan 2,5 sekúndna eða velja
Hætta
til að
hætta við.
Ef nokkur númer voru vistuð fyrir nafn, velur tækið
sjálfgefið númer ef það er skilgreint. Annars velur tækið
fyrsta nafnið á tengiliðaspjaldi. Þú getur einnig sagt nafnið
og gerð símanúmers, svo sem númer í farsíma eða
heimasíma.