Nokia E72 - Útilokanir

background image

Útilokanir

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Sími

>

Útilokanir

. Ef þú hefur tilgreint stillingar fyrir netsímtöl

velurðu

Útilokun netsímtala

.

Hægt er að loka fyrir símtöl úr tækinu og móttöku símtala

(sérþjónusta). Til að breyta stillingunum þarftu

útilokunarlykilorð frá þjónustuveitunni þinni. Útilokanir

hafa áhrif á allar gerðir símtala.
Veldu milli eftirfarandi stillinga fyrir útilokanir símtala.

Úthringingar

— Lokar fyrir símtöl úr tækinu.

Innhringingar

— Lokar fyrir móttekin símtöl.

Millilandasímtöl

— Lokar fyrir símtöl til útlanda.

Móttekin símtöl í reiki

— Lokar fyrir móttekin símtöl

þegar þú ert erlendis.

Símtöl til útlanda fyrir utan heimaland

— Lokar fyrir

símtöl til útlanda en leyfir símtöl til heimalands þíns.

Til að sjá stöðuna á útilokun símtala velurðu valkost

útilokunar og svo

Valkostir

>

Athuga stöðu

.

Til að slökkva á útilokun símtala velurðu valkost útilokunar

og svo

Valkostir

>

Ógilda allar útilokanir

.

Til að breyta lykilorðinu sem er notað til að loka fyrir

raddsímtöl og faxsendingar velurðu

Valkostir

>

Breyta

lykilorði útilok.

. Sláðu inn núverandi númer og síðan nýja

númerið tvisvar. Lykilorð útilokunar verður að vera fjórir

stafir að lengd. Nánari upplýsingar má fá hjá

þjónustuveitunni.