Nokia E72 - Úrræðaleit

background image

Úrræðaleit

Á www.nokia.com/support má sjá svör við algengum

spurningum um tækið.

Spurning: Hvert er læsingar-, PIN- eða PUK-

númerið mitt?

Svar: Sjálfgefinn læsingarkóði er 12345. Hafðu samband

við söluaðilann ef þú gleymir eða týnir læsingarnúmerinu.

Ef þú gleymir eða glatar PIN- eða PUK-númeri, eða ef þú

hefur ekki fengið slíkt númer, skaltu hafa samband við

þjónustuveituna.

Spurning: Hvernig loka ég forriti sem er frosið,

þ.e. svarar ekki?

Svar: Haltu heimatakkanum inni. Flettu að forritinu og ýttu

á bakktakkann til að loka forritinu.

126

Úrræðaleit

background image

Spurning: Af hverju virðast myndir vera

óskýrar?

Svar: Gakktu úr skugga um að hlífðargler

myndavélarlinsunnar séu hrein.

Spurning: Hvers vegna sjást daufir, upplitaðir

eða skærir punktar á skjánum í hvert skipti sem

ég kveiki á tækinu?

Svar: Þetta er einkennandi fyrir þessa gerð af skjám. Á

sumum skjám geta verið dílar eða punktar sem lýsa

annaðhvort stöðugt eða alls ekki. Hér er ekki um að ræða

galla heldur eðlilegan hlut.

Spurning: Af hverju finn ég ekki tæki vinar míns

þegar ég nota Bluetooth?

Svar: Gakktu úr skugga um að tækin séu samhæf, að kveikt

sé á Bluetooth og tækin séu sýnileg. Gakktu einnig úr

skugga um að fjarlægðin á milli tækjanna tveggja sé ekki

meiri en 10 metrar (33 fet) og að ekki séu veggir eða aðrar

hindranir á milli þeirra.

Spurning: Af hverju get ég ekki slitið Bluetooth-

tengingu?

Svar: Ef annað tæki er tengt við tækið þitt getur þú slitið

tengingunni í hinu tækinu eða slökkt á Bluetooth í tækinu

þínu. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Bluetooth

og

Bluetooth

>

Slökkt

.

Spurning: Hvers vegna get ég ekki séð

aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet þó svo ég

viti að ég er innan móttökusvæðis hans?

Svar: Gakktu úr skugga um að sniðið án tengingar sé ekki

í notkun í tækinu.

Verið getur að aðgangsstaðurinn noti falinn SSID-kóða. Þú

getur aðeins fengið aðgang að netkerfum sem nota falinn

SSID-kóða ef þú veist kóðann og hefur búið til aðgangsstað

þráðlauss staðarnets í Nokia-tækinu þínu.
Gakktu úr skugga um að WLAN-aðgangsstaðurinn sé ekki

á rásum 12-13 þar sem ekki er hægt að tengja þær við

hann.

Spurning: Hvernig slekk ég á þráðlausu

staðarneti í Nokia-tækinu mínu?

Svar: Tenging við þráðlausa staðarnetið rofnar þegar þú

ert ekki tengdur, ert ekki að reyna að tengjast við annan

aðgangsstað eða ert ekki að leita að tiltæku netkerfi. Til

að draga enn frekar úr rafhlöðueyðslu er hægt að stilla

Nokia-tækið þannig að það leiti ekki eða leiti sjaldnar að

tiltækum netkerfum í bakgrunni. Tengingu við þráðlausa

staðarnetið er slitið milli þess sem leit fer fram í bakgrunni.
Slökkt er á bakgrunnsleit með því að velja

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Þráðl.

staðarnet

>

Sýna vísi staðarneta

>

Aldrei

. Áfram er

hægt að leita handvirkt að tiltækum þráðlausum

staðarnetum og tengjast þeim eins og vanalega.
Til að auka tíma bakgrunnsleitar velurðu

Sýna vísi

staðarneta

>

og svo tímann í

Leitað að

staðarnetum

.

Spurning: Af hverju get ég ekki farið á vefinn

þrátt fyrir að WLAN-tenging virki og IP-

stillingarnar séu réttar?

Svar: Gakktu úr skugga um að þú hafir tilgreind réttar

HTTP/ HTTPS proxy-stillingar í frekari stillingum WLAN-

aðgangsstaðarins.

127

Úrræðaleit

background image

Spurning: Hvernig kanna ég gæði undirskriftarinnar í

WLAN-tengingunni minni? — Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Stj. teng.

og

Virkar

gagnatengingar

>

Valkostir

>

Upplýsingar

. Ef

sendigæðin eru lítil eða miðlungsgóð gætirðu lent í

vandræðum með að tengjast. Reyndu aftur nær

aðgangsstaðnum.

Spurning: Af hverju á ég í vandræðum með

öryggisstillinguna?

Svar: Gakktu úr skugga um að öryggisstillingin sé rétt og

sú sama og netkerfið notar. Til að sjá hvaða

öryggisstillingu netkerfið notar velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Tenging

>

Stj. teng.

og

Virkar

gagnatengingar

>

Valkostir

>

Upplýsingar

.

Kannaðu einnig eftirfarandi: þú notar rétta WPA-stillingu

(fordeildur lykill eða EAP), þú hefur slökkt á öllum EAP-

gerðum sem ekki eru nauðsynlegar og allar EAP-stillingar

eru réttar (lykilorð, notendanafn, vottorð).

Spurning: Af hverju get ég ekki valið tengilið

fyrir skilaboðin mín?

Svar: Tengiliðaspjaldið inniheldur hvorki símanúmer,

vistfang né tölvupóstfang. Veldu

Valmynd

>

Tengiliðir

,

og breyttu tengiliðaspjaldinu.

Spurning: Textinn Sæki skilaboð birtist í stutta

stund. Hvað er að gerast?

Svar: Tækið er að reyna að sækja margmiðlunarskilaboð

frá skilaboðastöðinni. Textinn sést ef þú hefur valið

Valmynd

>

Skilaboð

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Margmiðlunarboð

>

Móttaka margmiðlunar

>

Alltaf

sjálfvirk

. Gakktu úr skugga um að stillingar fyrir

margmiðlunarboð séu rétt valdar og að símanúmer og

vefföng séu rétt.

Spurning: Hvernig get ég lokað gagnatengingu

sem tækið kemur alltaf á aftur?

Svar: Tækið gæti verið að reyna að sækja

margmiðlunarskilaboð frá skilaboðastöðinni. Til að koma

í veg fyrir að tækið komi á gagnatengingu skaltu velja

Valmynd

>

Skilaboð

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Margmiðlunarboð

>

Móttaka margmiðlunar

>

Handvirkt val

til að skilaboðamiðstöðin visti skilaboð

sem verða sótt síðar eða

Óvirk

til að hunsa öll

margmiðlunarskilaboð sem berast. Ef þú velur

Handvirkt

val

færðu tilkynningu um að ný margmiðlunarskilaboð

bíði þín í skilaboðamiðstöð margmiðlunarboða. Ef þú

velur

Óvirk

kemur tækið aldrei á tengingu við símkerfið

vegna margmiðlunarskilaboða.
Til að láta tækið aðeins nota pakkagagnatengingu ef þú

ræsir forrit eða aðgerð sem þarfnast hennar velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Pakkagögn

>

Pakkagagnatenging

>

Ef með þarf

.

Ef það dugar ekki skaltu endurræsa tækið.

Spurning: Hvernig spara ég rafhlöðuna?

Svar: Margar aðgerðir tækisins auka orkuþörf og draga úr

líftíma rafhlöðunnar. Til að spara rafhlöðuna skaltu gera

eftirfarandi:
• Slökktu á Bluetooth þegar þú þarft ekki að nota það.
• Stöðvaðu bakgrunnsleit að WLAN. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Þráðl.

staðarnet

>

Sýna vísi staðarneta

>

Aldrei

. Áfram

er hægt að leita handvirkt að tiltækum þráðlausum

staðarnetum og tengjast þeim eins og vanalega.

128

Úrræðaleit

background image

• Stilltu tækið þannig að það noti aðeins

pakkagagnatengingu ef forrit eða aðgerð sem þarf á

henni að halda er ræst. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Tenging

>

Pakkagögn

>

Pakkagagnatenging

>

Ef með þarf

.

• Lokaðu á sjálfvirkt niðurhal nýrra korta í kortaforritinu.

Veldu

Valmynd

>

Kort

og

Valkostir

>

Stillingar

>

Internet

>

Tenging

.

• Breyttu tímanum sem líður þar til slökkt er á

baklýsingunni. Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stillingar

og

Almennar

>

Sérstillingar

>

Skjár

>

Tímamörk ljósa

.

• Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota. Haltu

heimatakkanum inni. Flettu að forritinu og ýttu á

bakktakkann til að loka forritinu.