VPN-aðgangsstöðum breytt
Veldu
Valmynd
>
Stjórnborð
>
Stillingar
og
Tenging
>
Nettengileiðir
.
Aðgangsstaður er staðurinn þar sem síminn tengist við
netkerfi. Til að nota tölvupóst og margmiðlunarþjónustu
eða til að opna vefsíður verður þú fyrst að skilgreina
aðgangsstaði fyrir þessa þjónustu. VPN-aðgangsstaðir
para VPN-stefnur við venjulega netaðgangsstaði til að
koma á öruggum tengingum.
Þjónustuveitan gæti forstillt suma eða alla aðgangsstaði
fyrir tækið þitt og því er ekki víst að þú getir búið til, breytt
eða fjarlægt aðgangsstaði.
Veldu
Valkostir
>
Breyta
og skilgreindu eftirfarandi:
110
Öryggi og umsýsla gagna
•
Heiti tengingar
— Sláðu inn heiti fyrir VPN-
aðgangsstaðinn.
•
VPN-stefna
— Veldu VPN-stefnuna sem þú vilt sameina
við netaðgangsstaðinn.
•
Internetaðgangsst.
— Veldu netaðgangsstaðinn sem
á að sameina við VPN-stefnu til að búa til örugga
tengingu fyrir gagnaflutninga.
•
Veff. proxy-miðlara
— Sláðu inn veffang proxy-
miðlarans fyrir einkanetið.
•
Númer proxy-gáttar
— Sláðu inn númer proxy-
gáttarinnar.
•
Nota aðgangsstað
— Veldu hvort tengingum um
aðgangsstaðinn er komið á sjálfkrafa.
Mismunandi getur verið hvaða stillingar eru í boði fyrir
breytingar.
Leitaðu upplýsingar um réttar stillingar í tæknideild
fyrirtækis þíns.