Nokia E72 - Nota leyfa

background image

Nota leyfa

Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir

leyfi sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota

öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Ovi Suite til að taka

öryggisafrit af bæði leyfum og efninu.
Ekki er víst að aðrar flutningsaðferðir flytji leyfið sem þarf

að endurstilla með OMA DRM-vörðu efni, til þess að hægt

sé að nota það eftir að minni tækisins hefur verið

forsniðið. Einnig gæti þurft að endurstilla leyfið ef skrár í

tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni

ásamt leyfi þess ef minni tækisins er forsniðið. Einnig gæti

leyfið og efnið glatast ef skrár í tækinu skemmast. Glatist

leyfið eða efnið getur það takmarkað möguleikann á að

nota efnið aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sum leyfi kunna að vera tengd tilteknu SIM-korti og aðeins

er hægt að fá aðgang að varða efninu ef SIM-kortið er í

tækinu.
Til að skoða leyfi eftir gerð velurðu

Gild leyfi

,

Ógild leyfi

eða

Ónotuð leyfi

.

Til að skoða upplýsingar um leyfi velurðu

Valkostir

>

Um

leyfi

.

Fyrir hverja mynd- og hljóðskrá eru birtar eftirfarandi

upplýsingar:

Staða

— Staðan er

Leyfi er gilt

,

Leyfi er útrunnið

eða

Leyfi er ekki enn gilt

.

Sending efnis

Leyft

táknar að hægt sé að senda

skrána í annað tæki.

Efni í síma

táknar að skráin er geymd í tækinu

og slóð hennar er birt.

Nei

táknar að skráin er ekki

geymd í tækinu.

Veldu

Ógild leyfi

>

Valkostir

>

Sækja nýtt leyfi

í

leyfisskjánum til að gera leyfi virkt. Samþykktu að koma á

nettengingu og verður þér þá beint á vefsvæði þar sem

hægt er að kaupa heimildir fyrir skrána.
Til að fjarlægja notkunarheimild af skrá velurðu skrána og

svo

Valkostir

>

Eyða

. Ef fleiri en ein notkunarheimild

tengist sömu skrá verður öllum heimildunum eytt.
Á hópleyfisskjánum eru sýndar allar skrár sem tengjast

hópheimild. Ef mörgum hljóð- eða myndskrám hefur verið

hlaðið niður með sömu heimild eru þær allar birtar á

þessum skjá. Hægt er að opna hópskjáinn í flipanum fyrir

gild leyfi eða ógild leyfi. Til þess að opna þessar skrár skaltu

opna hópheimildamöppuna.