Nokia E72 - Uppsetning forrita og hugbúnaðar 

background image

Uppsetning forrita og

hugbúnaðar

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri

tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er eða fá þær sendar

sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða nota

aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth. Hægt er að nota

Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp

forrit í tækinu.
Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stj. forrita

.

Uppsetningarskrárnar eru í möppunni Uppsetn.skrár og

uppsettu forritin í möppunni Uppsett forrit.
Tákn sýna eftirfarandi:

.sis- eða .sisx-forrit
Java-forrit

Forrit sett upp á minniskortinu

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og

annan hugbúnað frá traustum aðilum, t.d. forrit með

Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð með Java

Verified™.
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:

• Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda

eða framleiðanda forritsins skaltu velja

Valkostir

>

Skoða upplýsingar

.

Til að birta upplýsingar um öryggisvottorð forritsins

skaltu velja

Skoða upplýsingar

.

• Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða

endurbætur á forriti sem þegar er uppsett geturðu

aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort

upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða

öryggisafrit af öllum hugbúnaðarpakkanum sem var

fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega forritið

skaltu fyrst fjarlægja forritið og síðan setja það upp

aftur úr upphaflegu uppsetningarskránni eða

öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-

forrit. Ef skrána vantar getur tækið beðið þig um að

hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er

tilgreindur fyrir forritið biður tækið þig um að velja

aðgangsstað. Þegar .JAR-skráin er sótt getur notandinn

þurft að færa inn notandanafn og lykilorð til að komast

á miðlarann. Þú getur fengið notandanafn og lykilorð

hjá söluaðila eða framleiðanda forritsins.

Til að setja upp forrit eða hugbúnað gerir þú eftirfarandi:
1. Til að staðsetja uppsetningarskrá velurðu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Stj. forrita

og

Uppsetn.skrár

. Að

öðrum kosti skaltu leita að uppsetningarskrám með

Skráarstjóra eða velja

Skilaboð

>

Innhólf

og opna

skilaboð sem innihalda uppsetningarskrá.

2. Veldu forritið sem þú vilt setja upp í Forritastjórnun.

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar

um stöðu uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án

rafrænnar undirskriftar eða vottorðs birtir tækið

107

Öryggi og umsýsla gagna

background image

viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp

forritið ef þú ert viss um uppruna þess og innihald.

Veldu forrit til að setja það upp. Ef forritið er ekki með

sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í möppunni

Uppsetn. á aðalvalmyndinni.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp

eða fjarlægðir og hvenær það var gert skaltu velja

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit

í einu. Notkun fleiri en eins vírusvarnarforrits getur haft

áhrif á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið því að

það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins

eftir að forrit þeirra hafa verið sett upp á samhæfu

minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið því

að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni

skaltu nota Nokia Ovi Suite til að taka öryggisafrit af

uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu. Að

því loknu skaltu nota Skráarstjórann til að eyða

uppsetningarskránum úr minni tækisins. Ef .sis-skráin

hefur verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða

skilaboðunum úr innhólfinu.