Nokia E72 - Fjarstillingar

background image

Fjarstillingar

Veldu

Valmynd

>

Stjórnborð

>

Sími

>

Stj. tækis

.

Með stjórnanda tækis er hægt að stjórna stillingum,

gögnum og hugbúnaði í tækinu úr fjarlægð.

105

Öryggi og umsýsla gagna

background image

Þú getur tengst miðlara og fengið sendar stillingar fyrir

tækið þitt. Þú getur fengið miðlarasnið og mismunandi

stillingar frá þjónustuveitunni þinni eða upplýsingadeild.

Stillingarnar kunna að innihalda tengistillingar og aðrar

stillingar fyrir mismunandi forrit í tækinu. Mismunandi

getur verið hvaða valkostir eru í boði.
Fjarstillingartengingin er venjulega ræst af miðlaranum

þegar uppfæra þarf stillingar tækisins.
Til að búa til nýtt miðlarasnið skaltu velja

Valkostir

>

Miðlarasnið

>

Valkostir

>

Nýtt miðlarasnið

.

Þú færð e.t.v. þessar stillingar frá þjónustuveitanda þínum

í stillingarboðum. Ef ekki skaltu skilgreina eftirfarandi:

Nafn miðlara

— Færðu inn heiti stillingamiðlarans.

Auðkenn.nr. netþjóns

— Færðu inn auðkenni

stillingamiðlarans.

Lykilorð miðlara

— Sláðu inn lykilorð til að miðlarinn

beri kennsl á tækið þitt.

Aðgangsstaður

— Veldu aðgangsstað sem nota á með

tengingunni, eða búðu til nýjan aðgangsstað. Þú getur

einnig valið að beðið sé um aðgangsstað í hvert sinn

sem þú tengist. Þessi stilling er aðeins í boði ef þú hefur

valið

Internet

sem gerð flutningsmáta.

Heimaveffang

— Færðu inn veffang

stillingamiðlarans.

Gátt

— Færðu inn gáttarnúmer miðlarans.

Notandanafn

og

Lykilorð

— Sláðu inn notandanafnið

og aðgangsorðið að stillingamiðlaranum.

Leyfa stillingar

— Veldu

til að leyfa miðlaranum að

hefja stillingalotu.

Samþ. allar sjálfkrafa

— Veldu

ef þú vilt ekki að

miðlarinn biðji þig um staðfestingu þegar hann hefur

stillingalotu.

Sannvottun símkerfis

— Veldu hvort nota á http-

sannvottun.

Notandanafn símkerfis

og

Lykilorð

símkerfis

— Sláðu inn notandanafn og aðgangsorð

fyrir http-sannvottun. Þessi stilling er aðeins í boði ef

þú hefur valið að nota

Sannvottun símkerfis

.

Til að tengjast miðlaranum og taka við stillingum fyrir

tækið þitt velurðu

Valkostir

>

Hefja stillingu

.

Til að skoða stillingaskrá valins sniðs velurðu

Valkostir

>

Skoða notk.skrá

.

Til að uppfæra hugbúnað tækisins með ljósvakaboðum

velurðu

Valkostir

>

Leita að uppfærslum

. Uppfærslan

eyðir ekki stillingum þínum. Þegar þú móttekur

uppfærslupakkann í tækinu skaltu fylgja leiðbeiningunum

á skjánum. Tækið er endurræst þegar uppsetningunni er

lokið. Það að hlaða hugbúnaðaruppfærslum getur falið í

sér stórar gagnasendingar (sérþjónusta). Gættu að því að

rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu

hleðslutækið áður en uppfærslan er ræst.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til

að hringja neyðarsímtöl, fyrr en uppfærslunni er lokið og

tækið hefur verið endurræst.