Nokia E72 - Dulkóðun minnis tækisins eða minniskorts

background image

Dulkóðun minnis tækisins eða

minniskorts

Til að dulkóða minni tækisins velurðu

Minni símans

.

Til að dulkóða minniskort velurðu

Minniskort

og svo úr

eftirfarandi:

Dulkóða án þess að vista lykil

— Dulkóðaðu

minniskort án þess að vista dulkóðunarlykilinn. Ef þú

velur þennan valkost geturðu ekki notað minniskortið

í öðrum tækjum og ef þú velur upprunalegar stillingar

geturðu ekki afkóðað minniskortið.

Dulkóða og vista lykil

— Dulkóðaðu minniskortið og

vistaðu lykilinn handvirkt í sjálfgefinni möppu. Geymdu

lykilinn á öruggum stað utan tækisins, til öryggis. Til

dæmis geturðu sent lykilinn í tölvuna. Sláðu inn

aðgangssetningu fyrir lykilinn og heiti fyrir skrá

lykilsins. Aðgangssetningin ætti að vera löng og flókin.

Dulkóða með endursettum lykli

— Dulkóðaðu

minniskortið með lyklinum sem þú hefur fengið. Veldu

skrá lykils og sláðu inn aðgangssetninguna.